Fréttir
- Góð snjóalögÞetta er Steinninn með stóru s-i. Steinninn er í Engidal, nálægt Fossavatninu, og var kennileiti við upphaf göngunnar alla tíð frá 1935. Síðan gangan var lengd upp í 50 km. liðast brautin… Lesa meira : Góð snjóalög
- Happadrætti fram að áramótumAllir sem skrá sig til leiks fram að áramótum fara í pott sem dregið verður úr í janúar. Tveir heppnir þátttakendur fá frítt í gönguna 2025. Ódýrara er að skrá sig snemma,… Lesa meira : Happadrætti fram að áramótum
- Wild Westfjords er opinber ferðaskrifstofa FossavatnsgöngunnarFerðaskrifstofan Wild Westfjords er opinber ferðaskrifstofa Fossavatnsgöngunnar. Ferðaskrifstofan býður upp á pakka fyrir erlenda gesti sem byrja á alþjóðaflugvellinum í Keflavík. Í boði er pakki frá 15. apríl til 22. apríl, með… Lesa meira : Wild Westfjords er opinber ferðaskrifstofa Fossavatnsgöngunnar
Nokkrar myndir
Upplýsingar
Mótsskrifstofa
Í Edinborgarhúsinu er skrifstofa mótsins. Þar sækir þú númer og getur verslað í skyndiverslunum styrktaraðila göngunnar.
Sögufræg keppni
Í Fossavatnsgöngunni er sagan við hvert fótmál. Allir íslenskir skíðakappar hafa reynt sig við gönguna og fjölmargir af bestu göngumönnum heims hafa komið í gegnum tíðina.
Verðlisti
Hér getur þú fundið verðlista fyrir alla viðburði göngunnar. Greitt er fyrir alla vinnu á mótinu og rennur ágóðinn til ýmissa félagasamtaka.
Viltu koma og horfa?
Áhorfendur eru velkomnir á svæðið til að fylgjast með. Takmarkanir eru á umferð fyrst um morguninn og ekki eru mörg bílastæði. Ykkur er velkomið að taka rútuna með keppendum en munið að þeir hafa forgang.
Reglur og skilmálar
Hér getur þú rennt yfir reglur göngunnar og kynnt þér hvað á að vera í bakpokanum.
Rútur í keppni
Á leið í keppni á laugardegi taka allir rútu. Númerið þitt er miðinn i rútuna og er innifalinn í skráningu.
Úrslit
Ísfirska fyrirtækið Tímataka.net sér um að taka tímann hjá okkur. Úrslitin má nálgast í rauntíma og sjá hvernig keppendum miðar.
Fossavatnsgangan er hluti af fjórum mótaröðum
Íslandsgangan
Sjö skíðagöngukeppnir hringinn í kringum landið. Safnaðu stigum með því að taka þátt í sem flestum.
Worldloppet
Alþjóðleg röð skíðagöngukeppna. Taktu þátt í 10 göngum og til að verða Worldloppet-meistari.
Ski Classics
Sextíu skíðagöngur þar sem tugir liða atvinnumanna keppa samhliða áhugafólki af öllum getustigum.
Veðurstöðvar og veðurspá
Fossavatnsgangan rekur veðurstöðvar á Heiðinni, Nónvatni og Miðfellshálsi.
Veðurstofa Íslands rekur veðurstöð á Seljalandsdal, en svo má einnig skoða Þverfjall, þó það sé talsvert hærra og meira áveðurs en brautin í Fossavatnsgöngunni.
Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir Djúpið má sjá hér.