Íslenska English Norsk Deutch French
Websmith stjórnhluti - innskráning
* Next Race 30th of April 2011
Skráning Greiđsla ţátttökugjalda
Fossavatnsgangan 2010 - Úrslit Fossavatnsgangan 2009 úrslit í 50 km. Fossavatnsgangan 2009 Úrslit í 20 km Úrslit í Fossavatnsgöngunni 10 km. Fossavatn 2009 úrslit í 7km Úrslit
Kort og langsniđ Um gönguna Sagan Dagskrá Leiđbeiningar
FIS Nordic Ski Marathon Cup
Um gönguna
Leiđbeiningar

 

AÐ KOMAST TIL ÍSAFJARÐAR.

Flug: Flugfélag Íslands býður upp á tvær til þrjár ferðir daglega á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Sjá nánar á www.flugfelag.is.

 

Akstur: Aðal leiðin til Ísafjarðar að vetri til, hvort sem komið er af Norðurlandi eða Suðurlandi, er að aka þjóðveg 61 um Hrútafjörðinn, Hólmavík og Ísafjarðardjúp. Þegar Fossavatnsgangan fer fram, í apríl/maí, er ekki útilokað að þjóðvegur 60, um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar hafi verið opnaður, en sú leið er alla jafna lokuð að vetri. Fólk er eindregið hvatt til að kynna sér ástand veganna áður en lagt er af stað. Upplýsingar má finna á heimasíðu vegagerðarinnar www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/ og í upplýsingasímanum 1777.

 

Gisting: Hótel Ísafjörður er með tilboð á gistingu fyrir þá sem sækja okkur heim. sjá heimasíðu (www.hotelisafjordur.is)