Fossavatnsgöngunni er ætlað að vera vettvangur fyrir alla unnendur skíðaíþróttarinnar og hollrar útiveru, hvort sem það eru þrautþjálfaðir keppnismenn, útivistarfólk, trimmarar, byrjendur eða börn.
Þátttakendur geta valið á milli fjögurra vegalengda: 50 km, 20 km, 10 km og 7 km. Í tveimur lengstu vegalengdunum er þátttakendum skipt í eftirtalda aldursflokka:
16-34 ára, 35-49 ára, 50-65 ára, 66 ára og eldri.
Í styttri vegalengdunum er einn opinn flokkur hjá hvoru kyni. Athugið að börn yngri en 12 ára verða ætíð að ganga í fylgd ábyrgðarmanns.
Þeir sem vilja geta einnig skráð sig í sveitakeppni, sem er aukagrein með einstaklingsgöngunni. Þrír einstaklingar mynda hverja sveit, óháð aldri eða kyni. Skilyrði er þó að þeir séu allir að fara sömu vegalengd.
Allar vegalengdir í Fossavatnsgöngunni eru gengnar með hefðbundinni aðferð.
FOSSAVATNSHELGIN
Miðstöð mótsins er í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar fer fram afhending númera og gagna, auk þess sem allar samkomur í tengslum við gönguna fara þar fram.
Fimmtudagur
Segja má að Fossavatnshelgin hefjist á fimmtudegi, en þá er jafnan boðið upp á „masterclass“ námskeið sem opið er öllum sem áhuga hafa. Á þessum námskeiðum njóta þátttakendur leiðbeininga frá þekktu og þrautþjálfuðu skíðafólki, sem gefur góð ráð varðandi stíl, tækni o.fl.
Föstudagur
Á föstudeginum er boðið upp á brautarskoðun, en þá mun fulltrúi Fossavatnsgöngunnar útskýra keppnisleiðina og ganga hluta hennar með þátttakendum. Rúta flytur þátttakendur frá Hótel Ísafirði og til baka. Um kvöldið er svo boðið til pastaveislu þar sem allir hlaða sig orku fyrir átökin.
Laugardagur
Laugardagurinn er svo sjálfur keppnisdagurinn. Þeir sem ganga 50 km verða ræstir kl. 10:00, en aðrir kl. 11. Að lokinni göngu er boðið til kaffisamsætis og verðlaunaafhendingar í Edinborgarhúsinu og um kvöldið er á sama stað teiti þar sem skíðafólk skemmtir sér fram á nótt.
Boðið er upp á rútuferðir frá Ísafirði að rásmarki, og svo aftur frá endamarki og til baka að göngu lokinni. Tímasetningar á ferðunum verða auglýstar í Edinborgarhúsinu, á helstu gististöðum Ísafjarðar og á vefsíðu göngunnar.
