FIS Nordic Ski Marathon Cup
Árið 2005 var Fossavatnsgangan tekin inn á mótaskrá Alþjóða skíðasambandsins, FIS, og sama ár varð hún stofnaðili að norrænni mótaröð, FIS Nordic Ski Marathon Cup. Þar er um að ræða samstarf á milli Fossavatnsgöngunnar, Holmenkollen Skimaraton í Noregi, Tornedalsloppet í Svíþjóð og Oulun Tervahiito í Finnlandi.
