| [12.5.2008] |
|
Myndasyrpa Benna Herm
|
 |
|
Vekjum athygli á fullt af myndum úr Fossavatnsgöngunni á
www.123.is/benniherm
Þar hefur ljósmyndarinn Benedikt Hermannsson sett in rúmlega 600 myndir af göngunni 3 maí
|
| |
|
|
|
|
| [6.5.2008] |
|
Óskilamunir úr Fossavatninu
|
 |
|
Nú að aflokinni Fossavatnsgöngu sitjum við uppi með ýmislegt sem þátttakendur hafa gleymt að taka með sér, svo sem hanska, gleraugu, drykkjarbelti, áburði o.fl. Þeir sem sakna slíkra hluta eru beðnir að senda okkur póst á fossavatn@fossavatn.com
|
| |
|
|
|
|
| [6.5.2008] |
|
Að lokinni göngu
|
 |
|
Við aðstandendur Fossavatnsgöngunnar viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir þátttökuna í þessari stærstu göngu frá upphafi. Aldrei hafa eins margir skráð sig til þátttöku 290 manns en 242 náðu að klára. Við vorum með metþátttöku í öllum vegalengdum en veðrið setti strik í reikninginn. Það var með mikilli vinnu starfsmanna að það tókst að færa gönguna frá Botnsheiði yfir á Seljalandsdal. Umgjörð göngunnar var frábær, marksvæðið meiriháttar, 10 km hringurinn var skemmtilega erfiður. Veðrið hefði mátt vera betra en við búum á Íslandi. Allir okkar erlendu gestir voru mjög ánægðir með daginn þannig að mótið tókst alveg einstaklega vel.
Viljum líka minna á Fossavatns DVD, 2006 og 2007. Diskurinn kostar kr. 2500. Ennfremur varðandi ´diploma´þá getið þið líka pantað þau hjá okkur á fossavatn@fossavatn.com
Við sjáumst því í Fossavatnsgöngunni 2.maí 2009.
|
| |
|
|
|
|
| [4.5.2008] |
|
Úrslit í Fossavatninu
|
 |
Úrslitin úr Fossavatnsgöngunni verða fyrst um sinn geymd inni á síðu Skíðafélags Ísfirðinga, snjor.is. Þar á að velja liðinn „úrslit móta“ í vinstri dálkinum og þá birtast hinar ýmsu vegalengdir og flokkar sem hægt er að velja um.
|
| |
|
|
|
|
| [3.5.2008] |
|
Fréttir af göngunni, B-plan
|
 |
|
Nýjustu fréttir kl. 07:42, göngunni hefur verið frestað til þannig að 50 km verða ræstir kl.12:00 og 20,10 og 7 fara kl. 12:05
Nú verður startað frá Seljalandsdal og tekinn ca. 10-15 km hringur fyrir þá sem fara 10,20 eða 50 km. 7 km styttum við niður í 4 km.
Rútuferðir: Farið verður frá Hótel Ísafirði kl. 10 og 11.
Nánari upplýsingar verða lesnar inn á símasvara 878 1011 ef einhverjar breytingar verða.
|
| |
|
|
|
|
| [2.5.2008] |
|
Munið upplýsingasímann áður en farið er upp í start
|
 |
|
Það snjóar nú seint á föstudagskvöldi fyrir Fossavatn. Miðað við spána ætti veðrið ekki að slá okkur út af laginu, en þó er hugsanlegt að það þurfi að hreinsa veginn upp í startið áður en keppni getur hafist. Fólk er því hvatt til að hringja í upplýsingasíma göngunnar, 878-1011, áður en það leggur af stað uppeftir.
|
| |
|
|
|
|
| [1.5.2008] |
|
Stefnir í frábært veður
|
 |
|
Enn batnar spáin fyrir gönguna á laugardaginn. Núna er gert ráð fyrir léttskýjuðu, 4-5 m/sek aust-norðaust, +2°C og engin úrkoma. Það stefnir því í frábæra göngu á laugardaginn.
Sjáusmt öll í Fossavatnsgöngunni
|
| |
|
|
|
|
| [30.4.2008] |
|
Masterclass námskeið
|
 |
|
Masterclass námskeiðið með öllum frægu skíðaköppunum verður haldið kl. 17:00 upp á Seljalandsdal. Gjaldið verður kr.1.000,- á mann.
Sjáumst öll hress á morgun
|
| |
|
|
|
|
| [30.4.2008] |
|
Veðurspá fyrir 3/5
|
 |
|
Nýjasta veðurspá fyrir laugardaginn verður norðaustan -1°c ca 8m/sek, gæti komið smá úrkoma í dögun. Þetta er spá fyrir Breiðadalsheiði
|
| |
|
|
|
|
| [30.4.2008] |
|
Skráning og afhending númera
|
 |
|
Fimmtudaginn 1. maí fer skráning fram kl. 10:00-17:00 í Upplýsingamiðstöð Vestfjarða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Föstudaginn 2. maí verður skráning og afhending númera kl. 14:00-21:00 í Edinborgarhúsinu. Frekari upplýsingar má finna á DAGSKRÁ hér fyrir ofan. Athugið að þátttökugjald greiðist við afhendingu númera.
|
| |
|
|
|
|