Skráning

Vinsamlegast notið eyðublaðið á þessari síðu til að skrá ykkur í Fossavatnsgönguna. Útfyllt eyðublað má annaðhvort senda í tölvupósti á fossavatn@fossavatn.com, eða póstleggja það til

Fossavatnsgangan
c/o Nupur ehf.
Skeidi 1
400 Isafjordur.
ICELAND

Skráningargjald er;
Skráningargjald. 50 km. 20 og 10km 7 km.
Greitt fyrir 15.04 3.000,-kr. 2.000,-kr. 12 ára og yngri 1.000,-
13 ára og eldri 2000,-
Greitt eftir 15.04 4.000,-kr. 3.000,-kr. 12 ára og yngri 1.000,-
13 ára og eldri 2000,-
Hámarskgjald á fjölskyldu, 3 eða fleiri 10.000 kr

Innifaldið í skráningargjaldi er aðgangur að Sundhöll Ísafjarðar eftir göngu, pastaveisla kvöldið fyrir og kaffihlaðborð á keppnisdag. Skráningargjaldið á að greiða þegar númerin eru sótt.

Auk einstaklingskeppninnar fer fram liðakeppni og geta allir tekið þátt í henni sem vilja. Þrír einstaklingar, óháð kyni eða aldri, mynda saman eitt lið og samanlagður tími þeirra er tími liðsins. Vinsamlegast skrifið nöfn liðsfélaga ykkar í þar til gerðan reit á skráningarblaðinu, auk nafnsins sem þið hafið ákveðið að gefa liðinu. Athugið að allir í liðinu verða einnig að skrá sig í einstaklingskeppnina, og að allir í liðinu verða að keppa í sömu vegalengd.

Aldursflokkar eru eftirfarandi:
50 km: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-65 ára, 66 ára og eldri
20 km: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-65 ára, 66 ára og eldri
10 km: Einn opinn flokkur hjá hvoru kyni
7 km: Einn opinn flokkur hjá hvoru kyni